29 september 2010

RAUÐVÍNSSOÐNIR LAMBALEGGIR

RAUÐVÍNSSOÐNIR LAMBALEGGIR
3 - 4 lambaleggir
4 msk hveiti, blandað pipari og salti

olía til steikingar

2 laukar, saxaðir

3 - 4 hvítlauksgeirar, saxaðir

300 ml. rauðvín

1 - 2 dósir niðursoðnir tómatar

1 - 2 rósmaríngreinar

Veltið leggjunum upp úr hveitinu og steikið á öllum hliðum við háan hita. Lækkið hitann. Steikið laukinn í 3 - 4 mínútur án þess að brenna, bætið hvítlauk og vín út í ásamt kjötinu, tómötum og rósmarín. Hitið að suðu og látið malla í 2 tíma undir loki. Bragðbætið eftir þörfum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli